Snjallheimilið

Hvað kostar að gera heimilið snjallt?

Ljós sem kveikja sjálf, tenglar sem slökkva á sér, hiti sem fylgir deginum og skynjarar sem láta vita. Allt í núverandi rofum og dósum, með Shelly-einingum sem virka án nettengingar við útlönd.

Þú svarar spurningum um rýmin, ljósin og tenglana. Áætlunin sýnir efnið og verðbil, engin skuldbinding.

Þjónusta

Ljós og kveikingar

Ein eining á hvern ljósahóp í loftdósinni. Rofarnir þínir virka áfram, en ljósin kunna líka á tímastillingar, hreyfiskynjara og dimmun.

Tenglar og orka

Orkumælir í töflu sýnir hvað húsið notar og hvenær. Tenglar með mælingu slökkva á því sem gleymist.

Hiti og gluggatjöld

Hitastýring eftir svæðum, gluggatjöld sem fylgja sólinni. Allt stýrt úr einu appi eða Home Assistant.

Teikning og efnislisti

Raflagnateikning með IEC-táknum, lagnaleiðum, vírum og töflu. Efnislisti með verðbili úr íslenskum verslunum, svo rafvirkinn þinn getur gengið beint í verkið.

Eingöngu efni og hönnun í áætluninni: vinna, dósir, rör og akstur koma inn í tilboðið þegar húsið hefur verið skoðað.

Ferlið

  1. Þú svarar spurningum. Rými, ljós, kveikingar, rofar og tenglar, hvað á að dimma, hvaða búnað þú vilt og hvort lagnir eru nýjar. Tvær mínútur í símanum.
  2. Þú færð verðbil strax. Efnið eftir hlutverkum, forsendurnar sagðar, verð úr íslenskum verslunum frá og til. Áætlun, ekki tilboð.
  3. Þú sendir fyrirspurn. Svörin fylgja með, svo ég byrja ekki á núlli. Ég hef samband og við förum yfir húsið.
  4. Teikning, efnislisti og tilboð. Lagnir og staðsetningar teiknaðar á grunnmynd hússins, efnislisti með verði, og nákvæmara verð en vefurinn getur gefið.

Dæmi

Einbýlishús á Akureyri, eldri lagnir

Sjö rými, þrettán ljósahópar með þrjá dimmaða, orkumælir í töflu og hreyfi- og hitaskynjarar í hverju rými. Rofar og lagnir óbreyttar, einingarnar fara í loftdósirnar.

Einingar
13 í loftdósum + 1 orkumælir
Skynjarar
14 þráðlausir
Efni, verðbil
155–190 þús. kr.
Stjórnstöð
til staðar

Verð með VSK úr íslenskum verslunum haustið 2026, án vinnu. Raunverð ræðst af húsinu og því sem kemur í ljós við skoðun.

Um Snjallheimilið

Snjallheimilið er Davíð á Akureyri. Áralöng reynsla úr rafvirkjun, menntun í tölvu- og netkerfum og eigið heimili sem hefur verið snjallt í mörg ár, með kerfi sem hann skrifar sjálfur og gefur út sem opinn hugbúnað fyrir Home Assistant.

Lausnirnar byggja á Shelly-einingum: þær sitja í núverandi dósum, virka á heimanetinu án skýs og tala við Home Assistant, Google og Apple. Engin áskrift, engin læsing við eitt vörumerki umfram það sem þú velur sjálfur.

Tenging við rafkerfi hússins er unnin af löggiltum rafvirkja í samræmi við reglugerð um raforkuvirki. Snjallheimilið sér um hönnunina, efnið og uppsetningu hugbúnaðar.

Hafa samband

Spurning, hús sem þú vilt láta skoða, eða bara forvitni? Skrifaðu nokkrar línur. Ef þú vilt verðbil fyrst, byrjaðu á áætluninni, þá fylgja svörin með fyrirspurninni.